sunnudagur, febrúar 11, 2007

Bræðurnir Varmi og Léttfeti
Set auðvitað bara inn myndir af mínum hestum, þar sem þeir eru að sjálfsögðu langflottastir ;o) Haldið þið ekki að ég verði vígaleg í göngunum eftir nokkur ár þegar ég verð komin á Léttfeta? Lukku Láki my ass....ég verð sko mikið flottari! Var ekki hesturinn hans annars ljósblesóttur?
Hafði það semsagt af að fara og taka myndir af 1/2 af stóðinu, auðvitað var myndavélin batteríslaus eftir nokkrar myndir...
Þarf svo að fara í annan leiðangur næstu daga, þar sem folaldsmerarnar eru sér í hólfi. Er orðin spennt að sjá folöldin, ekki séð þau þannig lagað síðan í október. Garðar er nú búinn að viðurkenna fyrir mér að ég eigi fallegasta folaldið...ég vissi það nú alveg ;o)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Neinei Léttfeti hans Lukku-Láka er hvítur með gult fax og tagl og gula sokka... gæti orðið erfitt fyrir þig að rækta þann lit upp... en verður reyndar að viðurkennast að Léttfeti þinn er fallegur á litinn!

Maríanna sagði...

Þetta er nú þá NÆSTUM því eins og Lukku-Léttfeti. Ég sætti mig alveg við það ;o)